Skýrir valkostir auðvelda hugsandi fólki
að kjósa.
Arnar Þór Jónsson skrifar í Mbl
Eitt mikilvægasta hlutverk stjórnmálanna er að koma á og viðhalda jafnvægi milli ólíkra sjónarmiða, vera vettvangur þar sem menn leysa friðsamlega úr ágreiningsmálum, finna sameiginlegar lausnir, marka farsælustu stefnu o.s.frv. Stjórnmálamenn eru ekki kosnir til að fyrirskipa í smáatriðum hvernig við eigum að tala eða lifa. Rökræður verður að leyfa og landsstjórnin má hvorki verða alræðisöflum að bráð né leysast upp í stjórnleysi.
Þegar þetta er ritað er ég kominn í launalaust leyfi frá dómstörfum til að vinna að því markmiði að komast inn á þing. Ég hef haldið út í þessa vegferð til að starfa markvisst með þeim sem vilja búa þjóðinni farsæla framtíð, verja frjálslyndi gegn stjórnlyndi og lýðræðið gegn alræðisógn. Lífið hefur knúið mig til að viðurkenna að ég hef hef ekki öll svör og að rétt sé að hlusta á aðra með opnum huga. Sú reynsla hefur gert mig að talsmanni klassísks frjálslyndis. Lífið hefur einnig gert mig að hófsömum íhaldsmanni sem virðir reynslu fyrri kynslóða.
Gott samfélag byggist á traustum undirstöðum, þar sem fjölskyldan, nærsamfélagið, félagsstarf, andlegt líf, viðskipti og menntun skapa umgjörð þar sem einstaklingurinn fær svigrúm til að nýta hæfileika sína, sjálfum sér og öðrum til góðs. Ég býð fram krafta mína til að verjast þeim sem með sleggjudómum, rangfærslum og útúrsnúningum vilja grafa undan þeirri samfélagsgerð sem hér hefur verið byggð upp af alúð og dugnaði kynslóðanna. Í því felst að ég vil verja stjórnarskrána, frjálslynda laga- og lýðræðishefð, menningarlegar stoðir, fjölskylduna, lýðveldið, stofnanir þess o.fl. Allt þetta er auðveldara að brjóta niður en byggja upp að nýju. Ég rita þessar línur til að vara við flokkum sem vilja* láta kreddur lama heilbrigðis-, samgöngu- og menntakerfi landsins
- vanmeta reynslu og þekkingu með því að ýta starfhæfu fólki út af vinnumarkaði vegna aldurs
etja saman stéttum í stað þess að fólk standi saman um að bæta hag sinn og náungans - undiroka aðra í nafni jafnréttis * réttlæta kúgun í nafni frelsis
- beita ritskoðun í nafni lýðræðis * hefta rannsóknir í nafni vísinda
- hefta einkaframtak í nafni framfara * standa gegn gagnrýninni hugsun og heilbrigðum efa í nafni samstöðu
- nota innanfélagsreglur til að svipta menn lýðræðislegum og lögvörðum réttindum
- leggjast gegn frjálsri hugsun, samtali og rökræðum í nafni pólitísks rétttrúnaðar
- draga fólk í dilka og telja mönnum trú um að þeim beri að hugsa og tjá sig eins og aðrir sem falla í sama flokk
- innleiða, í anda gervilýðræðis, reglur sem Íslendingar hafa aldrei fengið að kjósa um og henta ekki hér
- fela stjórnlyndi sitt á bak við grímu frjálslyndis
- afhenda embættismönnum víðtæk völd í stað þess að leita vilja fólksins sem byggir landið
- færa ákvarðanir í mikilvægum málum þjóðarinnar út fyrir landsteinana
- vantreysta dómgreind almennra borgara
- sérfræðingaræði fremur en lýðræði
- sætta sig við skrifstofuveldi sem gengst upp í valdi sínu
- vantreysta frjálsri félagastarfsemi en treysta miðstýrðu skrifræði
- ríkisvæða menningarstarfsemi
- kalla eftir þjóðnýtingu blómlegra einkafyrirtækja
- krefjast þess, í nafni fjölbreytni, að allir hugsi eins
- útiloka, þagga niður í og reka burt þá sem ekki eru taldir nægilega leiðitamir
- óska eftir umboði til að stjórna undir fána stjórnleysis (anarkisma) eða fána erlends ríkjasambands (ESB)
- að ríkið og sveitarstjórnir stýri félagslegri hegðun fólks fremur en fólkið sjálft
- afneita kristinni trú reistri á kærleika og umburðarlyndi, sem reynst hefur þjóðinni haldreipi um aldir, en tilbiðja í staðinn margs konar veraldleg fyrirbæri
- hlýða fyrirmælum í blindni, fremur en að hugsa sjálfstætt
- hvetja til víðtæks eftirlits og miðlægrar söfnunar upplýsinga um málefni einstaklinga, heilsufar borgaranna, viðhorf þeirra, ferðir o.fl.
- umbreyta menntun í heilaþvott
- berjast gegn einelti með því að beita einelti
- líta á peninga sem sjálfstætt markmið en ekki sem tæki / verkfæri til að öðlast gott líf
- ekki efast um eigin stefnumál, hlusta ekki á andstæð sjónarmið og kunna ekki að gera greinarmun á hlutlægum málflutningi / miðlun frétta annars vegar og áróðri hins vegar
- koma á stöðugleika með byltingu
- breyta öðrum, en ekki sjálfum sér
- vinna að því að færa ábyrgð (og frelsi) frá einstaklingnum yfir til ríkisvaldsins
- skerða borgaraleg réttindi til að koma á nýrri miðstýrðri samfélagsgerð
- ekki að allir séu jafnir fyrir lögunum, heldur að sumir séu jafnari en aðrir á grundvelli útlits, stéttar eða stöðu
- trúa því að enginn hlutlægur sannleikur sé til og að einungis veraldlegt vald afmarki hvað telst satt, rétt og leyfilegt
- að athafnir borgaranna séu háðar leyfisveitingum
- ekki viðurkenna að maðurinn sé gæddur frjálsum vilja, en halda því fram að maður stjórnist aðeins af innri og ytri þáttum sem hann ræður engu um, svo sem erfðum, hormónum, menningu o.fl.
- að vald og ábyrgð fylgist ekki að
- tefja umferð helsta samgöngutækis fólksins, fjölskyldubílsins, á grunni óvissra fyrirheita um betri almannasamgöngur eftir mörg ár
- auka með umferðarstíflum útblástur og mengun en þykjast vera að vinna gegn loftslagsvá
Góð menntun hjálpar okkur til að spyrja réttra spurninga og leita skilnings á viðfangsefninu með því að skoða það frá öllum hliðum. Skylda okkar í lífi og starfi, ekki síst á kjördag, hlýtur að vera að gaumgæfa viðfangsefnin vandlega og kynna sér vel andstæð sjónarmið til að geta komist að yfirvegaðri niðurstöðu. Sjálfur hef ég á starfsferlinum notið langs og vinsamlegs samstarfs með fólki sem aðhylltist allt aðrar lífsskoðanir en ég, enda var okkur ljóst að fleira sameinaði okkur en sundraði. T.d. aðhylltumst við lýðræði en ekki auðræði, fámennisstjórn eða tækniveldi.
Við sjálfstæðismenn viljum verja frjálst samfélag þar sem menn umbera ólíkar skoðanir og þar sem mönnum leyfist að setja fram mismunandi sjónarmið, án þess að sæta hótunum, útskúfun eða brottrekstri. Grunnstefna Sjálfstæðisflokksins miðar að því að verja frelsi einstaklingsins til orðs og athafna, efla einkaframtakið, takmarka afskipti og umsvif ríkisins, lækka skatta, hvetja til frjálsrar samkeppni og félagslegrar samvinnu þar sem það á við. Skapa forsendur blómlegs atvinnulífs, byggja heilnæma umgjörð utan um fjölskyldur þessa lands og fyrirtæki, auk þess að hvetja einstaklingana til að láta ljós sitt skína með virkri þátttöku í félags-, stjórnmála- og atvinnulífi, og með því að taka ábyrgð á eigin frelsi. Með þessu móti vil ég í anda sjálfstæðisstefnunnar „vinna að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum“.
Til að mér takist að láta þessa rödd hljóma þarf ég umboð kjósenda 25. september nk. Ég treysti ykkur, kæru lesendur, til að fara vel með atkvæðisréttinn og horfa þar til þess hverjum er best treystandi til að tryggja þá þjóðfélagsgerð sem Íslendingar hafa valið sér – og þar með farsæla framtíð þjóðarinnar í landi sínu.
Höfundur skipar 5. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.