Útvatnað heilbrigðiskerfi fyrir alla

Eini stöðugleikinn í þjóðfélaginu er stöðugur ótti hinna óttaslegnu

Loftur skrifar:

Hver er stefna ráðuneytisins?

Ein fyrsta og um leið einfaldasta efnafræðitilraunin sem nemendur í skólum landsins gera er að hella saman sýru og basa svo úr verður vatn. Vatnið er nauðsynlegt öllu lífi og er merkilegt fyrirbæri þar sem það getur leikið tveimur skjöldum og verkað bæði sem sýra og basi, er svokallaður „amfóter“. Vegna eiginleika sinna er vatnið gott þynningarefni því það er í eðli sínu mjög óstöðugt. Gæta þarf þó þess að ofnota það ekki t.d. við blöndun eðaldrykkja því þá verður til þunnt vatnsgutl. Það sama gildir um liti regnbogans; því fleiri fallegum litum sem hrúgað er saman, því óhrjálegri verður útkoman.

Í ríkisstjórn Íslands sitja nú þingmenn þriggja stjórnmálaflokka, sem kosnir voru til setu á Alþingi af fólki með ólíkar skoðanir, sumar basískar og bláar, aðrar súrar og rauðar og sumar skoðanalausar og grænar. Þegar öllu þessu er hrært saman verður útkoman hlutlaus vatnsþunn litahræra, sem er óðum að gufa upp. Eftir situr salt leðjubotnfall, sem borið er á borð fyrir kjósendur einkum þá sem veikir eru fyrir og ná ekki að forða sér. Ólík sjónarmið eru orðin að leiðinlegu miðjumoði og flest skynsamleg markmið hafa gufað upp og horfið sjónum, helför undir gunnfána „stöðugleika“ ræður förinni. En hvert er ferðinni heitið? Varla á vel búnar en mannlausar heilsugæslustöðvar úti á landi, varla á bráðadeild Landspítalans, varla á einkareknar skurðstofur sem geta m.a. framkvæmt ódýrar augn- og bæklunaraðgerðir. Á þessum stöðvum er ekkert að gerast.

Það sem ekki er gufað upp úr stefnuskrá stjórnarflokkanna er nú botnfrosið. Starfsmenn heilbrigðiskerfisins berjast um í ískaldri, þykkri botnleðjunni, sem dregur úr þeim allan þrótt og starfsvilja. Húsnæðisvandamál Landsspítalans mætti leysa með nýju sjúkrahúsi á nýjum stað undir nýrri stjórn ásamt því að fjölga hjúkrunarrýmum fyrir aldraða. Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er nú bannorð í anda VG. Sjúklingar eru nú sendir í skurðaðgerðir á erlend sjúkrahús, sum reyndar einkarekin í nafni „stöðugleika“ þótt það óskiljanlega gerræði æri óstöðugan og sé margfalt dýrara og mun óhagkvæmara fyrir alla aðila ekki síst þá sjúku.  Varla samrýmist það stefnuskrá XD og varla eykur það á „stöðugleikann“ í þjóðfélaginu.  Hinir efnameiri þurfa þó ekki að fara lengra en í Ármúlann til að fá nýjan mjaðmalið eða nýtt hné. Hér á landi hefur því myndast tvöfalt heilbrigðiskerfi, „ameríska kerfið“. Varla samrýmist það stefnuskrá VG?

Lyfjamál landsmanna eru og hafa lengi verð í algjörum ólestri vegna skorts á yfirsýn, lélegrar stjórnunar og úrræðaleysis ráðamanna. í stefnuskrá VG segir orðrétt: „Lækka þarf lyfjakostnað með hagkvæmari innkaupum, hindra einokun og samþjöppun á lyfjamarkaði og kanna möguleika á því að setja aftur á stofn lyfjaframleiðslu á vegum hins opinbera.“  Já, sæll! Við bíðum spennt. Sjálfstæð hugsun nær ekki inn fyrir veggi heilbrigðisráðuneytisins. Þar er „stefna ráðuneytisins“ varðandi lyfjamál og bólusetningar að vera taglhnýtingur ESB með öllum þeim hörmungum sem nú dynja yfir landslýðinn með tilheyrandi áhrifum á þjóðarbúið og geðheilsu landsmanna.


Í stað þess byggja upp og auka hagræðingu og skilvirkni heilbrigðiskerfisins sem þegar er örmagna er miklum fjármunum sóað alls kyns gæluverkefni svo sem í gamaldags ríkisútvarp, óskiljanlegan borgarlínustokk, “loftslagsmál” og nú skal stofna eins konar þjóðarsóunarsjóð. Í stað þess að efla og hvetja sjálfstætt starfandi fyrirtæki í einkarekstri er áformað að hækka álögur og skatta og stækka enn ríkisbáknið svo um munar.  Þunnur þrettándi þar fyrir gamla fólkið sem hímir yfirgefið á göngum Landspítalans.

Það er í raun afar sorglegt að sú ríkisstjórn Íslands sem er borin uppi af Sjálfstæðisflokknum skuli láta heilbrigðisráðherra sem er sósíalisti í orði og æði vaða uppi með sínun brellibrögðum í þeim málaflokki sem hún ber ábyrgð á gagnvart kjósendum. Það er yfirlýst stefna hennar að útrýma einkarekinni heilbrigðisþjónustu og ríkisvæða allt sem kjafti kemur. Þetta er einkar dapurlegt þegar sýnt hefur verið fram á að þjónusta einkarekinna sérfræðinga „sérfræðinga úti í bæ“ kostar skattgreiðendur einungis um 4,7% af heildarútgjöldum ríkisins til heilbrigðismála! Þrátt fyrir þennan lága kostað skilar þessi þjónusta jafn mörgum læknisheimsóknum og Landspítalinn og heilsugæslan samanlagt! Samt þrjóskast ríkisstjórnin við og situr við sama keip. Þrjóskan er á svo háu stigi að t.d. í stað þess að nýta einkarekna heilbrigðisþjónustu hér á landi eru sjúklingar sendir til Danmerkur þar sem sömu íslensku læknar framkvæma sömu aðgerðir og hægt er að framkvæma með góðu móti á Klínikinni við Ármúlann með mun minni kostnaði og mun minna raski fyrir sjúklinginn og fylgdarmann hans. Menn geta ímyndað sér vesenið og óþægindin fyrir alla aðila af alvarlegar auka- eða hliðarverkanir koma upp í aðgerð á Rikshospitalet. Hvað kostar það skattgreiðendur? Sama gildir um lífsýni, þau má ekki greina á Íslandi, þau verður að senda til Köben þar sem þau fá tímabundið danska kennitölu þar til þau koma aftur til íslands eftir dúk og disk og fá þá aftur íslenska kennitölu. Einfalt og snjallt? Eða hvað?

Eini stöðugleikinn í þjóðfélaginu er stöðugur ótti hinna óttaslegnu.

Amfóterinn sem nú er við stjórn hræðist fátt, ekki einu sinni kjósendur sína.  Vatnssósa ríkisstjórnin getur blandast hvaða skoðunum sem er til hægri og vinstri og látið þær gufa upp.  Vatnið sjálft getur myndað sambönd við flest önnur efni að þeim vatnsfælu undanskildum. Olía er vatnsfælin hún forðast botnfrosið vatnsgutlið.  Á Íslandi kraumar eldur undir ísnum. Óánægja kjósenda, einkum þeirra sjúku og vanmáttugu en einnig þeirra í þessu þjóðfélagi sem trúa á frumkvæði einstaklingsins og fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar getur verið olía á þann eld.  

Félag Sjálfstæðismanna um fullveldismál kallar nú eftir frambjóðendum í öllum kjördæmum, sem eru reiðubúnir að vinna að því að koma Sjálfstæðisflokknum aftur á réttan kjöl í næstu kosningum og starfa að heilindum eftir stefnuskrá hans og markmiðum.

Gos er hafið.